-Ég heiti Bryndís Ösp Ólafsdóttir og er 5 ára ofurskvísa-



Ég fæddist 24. Júli 2005 á Landspítalanum í Reykjarvík og var 17merkur og 55 cm, ekki smá myndaleg stelpa, með mikið svart hár og dökk augu. Fæðingin gekk bara vel. Mamma missti vatnið um morguninn en fékk ekki neina alvöru verki fyrir en um 12 að miðnætti, þá fóru mamma, pabbi og Eva frænka upp á fæðingadeild og ég leit dagsins ljós kl 03.23. Ljósan sem tók á móti mér heitir Sigríður Þórhallsdóttir og var svaka skemmtileg. Mamma mín heitir Tinna Sif Bergþórsdóttir '85 og Pabbi minn heitir Ólafur Ingi Ómarsson '84 við búum í Hafnarfirði. Síðan var ég að eignast lítinn bróður og er hann allveg æðislegur, ég er búin að vera rosa góð við hann og finnst hann sætastur








Gunnar Breki bróðir minn



Nafnið mitt þýðir

Bryndís

Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bryn" sem merkir brynja, - varin og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

Kannski er því vakað yfir Bryndísi eða hún vakir yfir og ver aðra.

Ösp

Trjáheitið Ösp



Natalía Tinna og Egill Þór frændsystkini mín

Selma Sif Vinkona

Sara Rós Vinkona

Fannar og Almar Þór frændur minir

Steinþór Snær og Björn Diljan

Óskar Karl litli frændi

Aðalsteinn Ingi litli frændi

Finnur Örn vinur minn

PABBI ER MAÐURINN....
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og
annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI



MAMMA ER KONAN...........

Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst
með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI.



EINKARÉTTUR SMÁBARNA


*Ef mér finnst það flott, þá á ég það

*Ef ég held á því, þá á ég það

*Ef ég næ því frá þér, þá á ég það

*Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það

*Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt

*Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana

*Ef það líkist dótinu mínu, þá á ég það


ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA



Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur, gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn, sofið út um helgar, greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt, hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottð af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég ekki tíu sinnum á nóttu til þess að aðgæta hvort allt væri ekki örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum, sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir því að eiga barn